Dæmalaust lélegt!

Dæmalaust lélegur fulltrúi Íslands. Ekki datt honum í hug að lyfta fram spurningunni hvort Íslendingum beri að borga þetta. Bara jarmur um að við eigum og ætlum að borga og von um að lýðurinn beygi sig og samþykki.

Að mínu áliti getur það aldrei verið rétt að almenningur eigi að greiða úr eigin vasa fyrir afglöp einkafyrirtækis.

Var einhver að tala um að "kynna málstað okkar erlendis"? Þetta viðtal hefði betur verið óbirt. Það skemmir fyrir málstað Íslendinga.


mbl.is Sænska sjónvarpið fjallar um Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Loftur Altice Þorsteinsson

Algerlega sammála þér Jón Bragi. Þetta var sama ruglið og maður hefur heyrt svo víða. Ég er búinn að senda skeyti á Olle Zachrison og bjóða honum upplýsingar.

Loftur Altice Þorsteinsson, 12.1.2010 kl. 20:05

2 Smámynd: Jón Bragi Sigurðsson

Gott er. Mér fannst nú Olle satt að segja mun nær því að taka málstað Íslands en þessi svokallaði fulltrúi Íslands. Mér finnst satt að segja að hægt sé að krefjast aðeins meiri reisn og mannsbrags af þessum velhöldnu sendiherrum landsins. Það er lítill skaði af því ef sendiherrum verður fækkað eitthvað ef þeir eru fleiri í þessum dúr.

Jón Bragi Sigurðsson, 12.1.2010 kl. 20:40

3 identicon

Gerðu þér grein fyrir því að þó þér finnist eitt þá er ástæðulaust að álasa aðra fyrir að þóknast ekki nákvæmlega þínum skoðunum. Við lifum í lýðræðistlandi þar sem ríkir skoðanafrelsi.

Kári (IP-tala skráð) 12.1.2010 kl. 22:38

4 identicon

Ætli menn séu búnir að gleyma því sem gerðist í Hafnarfirði þegar hann var bæjarstjóri. Burtu með þennan mann hann  var sakaður um fjárdrátt í Hafnarfirði en einhvernveginn var það mál þaggað niður.

Jóhann Már (IP-tala skráð) 12.1.2010 kl. 22:48

5 identicon

Kári, þú virðist ekki átta þig á því að skoðun Jóns Braga á við um flest alla Íslendinga. Ekki veit ég hvar þú hefur haldið þig undanfarna mánuði, en til að koma þér inn í málin vil ég benda þér á að núverandi ríkisstjórn hefur algjörlega brugðist með að tala fyrir hönd alþýðunnar á alþjóðagrundvelli.

Skammarlegt, allt saman.

Jón Flón (IP-tala skráð) 13.1.2010 kl. 01:59

6 Smámynd: Jón Bragi Sigurðsson

Ég er ekki að álasa neinum fyrir skoðanir sínar Kári. Mér finnst það bara skylda sendiherra að halda fram hagsmunum og sjónarmiðum Íslands en ekki bara sitja eins og barinn hundur og beygja sig undir viðhorf Hollands og Englands. Hvað ætli landhelgi Íslands væri stór ef við hefðum haft svona málsvara gegnum tíðina? Ég giska á 3 sjómílur frá landi og ekki dregið þvert fyrir firði og flóa.

Jón Bragi Sigurðsson, 13.1.2010 kl. 07:27

7 Smámynd: Loftur Altice Þorsteinsson

Það er aumingjaháttur eins og við sjáum hjá sendiherranum, sem komið hefur okkur í þá erfiðu stöðu sem við erum í núna. Með vinnu almennings munum við snúa þessu algerlega við, losna við allar Icesave-kvaðir og gera réttmætar kröfur á hendur Bretlands. Réttlætið mun sigra á endanum.

Við þurfum að hrista af okkur Icesave-stjórnina eins og hverja aðra óværu. Vantar ekki hráefni í bræðslurnar á Austurlandi ? Þótt lítið lýsi sé í Jóhönnu, þá bætir Össur það upp.

Loftur Altice Þorsteinsson, 13.1.2010 kl. 08:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Jón Bragi Sigurðsson

Höfundur

Jón Bragi Sigurðsson
Jón Bragi Sigurðsson
Er aðallega hér til þess að geta kommenterað á önnur blogg en þó er aldrei að vita nema ég skrifi hér eitthvað gáfulegt í framtíðinni ef andinn kemur yfir mig.
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband