Nú er ég hoppandi vondur!

Þetta þykir mér alveg makalaust. Voru lífeyrissjóðirnir virkilega stofnaðir til þess að vera einhver björgunarstofnun fyrir fyrirtæki sem eru komin með sín fjármál í óefni? Ég held ekki. Ég hélt að þeir væru stofnaðir til þess að við sem höfum lagt 10-12% af launum okkar í þá gætum átt áhyggjulaust ævikvöld. Og ég var reyndar að lesa í lögum um lífeyrissjóði að þeir ættu að ávaxta þetta fé á sem öruggustan hátt og ekki taka neina óþarfa áhættu.

En það er ekki að sjá að stjórnendur þeirra séu á sömu línu og ég. Raunar virðist sem að harla fáir séu á sömu línu og ég í þessu máli. Sárafáir launþegar svo ekki sé nú talað um forystumenn þeirra virðast hafa nokkuð að athuga við þær hugmyndir að taka fé lífeyrissjóðanna úr öruggri ávöxtun erlendis og henda þeim í meira eða minna gjaldþrota fyrirtæki og atvinnubótavinnu.

 Sjálfur Hrafn Magnússon, framkvæmdastjóri  Landssamtaka lífeyrissjóða virðist alla vega ekki hafa neinar áhyggjur af málunum: "Hann telur þó líklegt að lánin verði á ákjósanlegum vöxtum og hagstæð fyrir lífeyrissjóðina." Það er sem sagt "líklegt" en eingan veginn öruggt og ekki að sjá að honum finnist það skipta neinu máli í sjálfu sér. Honum finnst greinilega miklu meira gaman að leika jólasvein með peningana okkar en að vera að hafa einhverjar áhyggjur af því hvað verði eftir í sjóðnum þegar kemur að því að greiða okkur sem eigum þessa peninga lífeyri...


mbl.is Lífeyrissjóðir hlaupa undir bagga með Landsvirkjun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Sveinsson

Blessaður jón

það er sama hvar er drepið niður,Ef þú þarft á verkalýðsfélagi að halda vegna launa þinna þá sega þeir bara af hverju  varstu að vinna hjá þessum það næst ekkert útúr þessu, leitaðu þér að annarri vinnu,

Lýfeirissjóðir eins og Bankarnir þú bara borgar okkur og þegiðu við þurfum að leika okkur svolítið þegar þessu er lokið þá sendum við þér reikninginn.

Jón Sveinsson, 20.7.2009 kl. 20:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Jón Bragi Sigurðsson

Höfundur

Jón Bragi Sigurðsson
Jón Bragi Sigurðsson
Er aðallega hér til þess að geta kommenterað á önnur blogg en þó er aldrei að vita nema ég skrifi hér eitthvað gáfulegt í framtíðinni ef andinn kemur yfir mig.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 6
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 317

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband